Næstkomandi helgi verður haldin atvinnu- og nýsköpunarhelgi(ANH) á suðurnesjum þetta verður fyrsta skipti á þessu ári sem slíkur viðburður er haldin en hann kemur svo til með að verða haldin víða um land. Aðal markmið ANH er að virkja fólk og styðja við það í að framkvæma. Viðburðurinn er öllum opinn bæði þeim sem eru með viðskiptahugmynd og þeim sem langar til að koma inn í teymi sem nú þegar er með viðskiptahugmynd. Yfir helgina eiga hóparnir að byrja að vinna að frumgerð að ákveðinni vöru eða þjónustu. Á þriðja tug frumkvöðla og aðila með víðtæka reynslu og menntun verða þáttakendum til aðstoðar. Að helginni lokinni geta þátttakendur síðan unnið áfram með vel mótaðar viðskiptahugmyndir og látið þær verða að veruleika. Verðlaun eru veitt í nokkrum flokkum.
ANH er samstarfsverkefni Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs, sveitarfélaga landsins og Landsbankans.
Varðandi fyrirkomulagið á viðburðinum þá er því lýst svona á vefsíðu ANH (http://www.anh.is):
- Þátttakendur halda stutta kynningu á viðskiptahugmynd sem þeir vilja vinna að yfir helgina. Það er í góðu lagi að hugmyndin sé á byrjunarpunkti og kvikni jafnvel á staðnum.
- Allir þátttakendur, líka þeir sem kynna viðskiptahugmyndir, eru beðnir um að velja 5-10 hugmyndir sem þeim fannst hljóma best í kynningunni sem var haldin
- Kannað er hvaða hugmyndir fengu mestan hljómgrunn og unnið er áfram með þær yfir helgina. Öllum þátttakendum er skipt niður í hópa til að starfa að framgöngu þeirra viðskiptahugmynda sem taldar voru bestar.
- Settar eru ítarlegar vörður um hvernig beri að þróa viðskiptahugmyndina yfir helgina og hvaða vörðum hópurinn ætli sér að ná.
- Samvinna er lykill helgarinnar.
- VINNA ! VINNA ! VINNA!
Ég verð á svæðinu til að leiðbeina en mun jafnframt taka fullan þátt í viðburðinum þar sem ég hef heyrt að það verði oft til ótrúlega öflugir hópar/fyrirtæki á svona viðburðum. Ég mæli með að allir sem hafa einhvern áhuga skrá sig á vefsíðu ANH.