Ég er búinn að vera með Word of Mouth Marketing eftir Andy Sernovitz á náttborðinu hjá mér í heilan mánuð. Það var ekki fyrr en ég hoppaði upp í bústað núna um helgina sem ég komst í að lesa hana. Og viti menn, hún var straujuð á einni helgi.
Það er talað um fyrirtækið og vörumerki, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Fólk deilir því hvernig þjónustan á veitingastaðnum var, hvort maturinn hafi verið góður eða hvort þjónninn hafi verið í hvítum sokkum. Þannig hefur það verið frá örófi alda og mun halda áfram. Þessi bók reynir að kenna þér hvernig þú átt að nýta þetta umtal þér í hag.
Grunnhugmyndin í bókinni er semsagt, finndu rétta fólkið til að tala um þig og gefðu því eitthvað að tala um.
Sernovitz brýtur þetta niður í “T-in 5″ (The Five T’s):
- Talkers – Hverjir eru að tala um þig? Hverjir viltu að tali um þig?
- Topics – Um hvað er fólk að tala? Hvað viltu að það tali um?
- Tools – Hvar er fólk að tala um þig? Skapar þú einhvern vettvang fyrir þá umræðu?
- Taking part – Tekur þú þátt í þessari umræðu? Hvað gerir þú til að kynda undir hana?
- Tracking – Hversu vel mælirðu þetta umtal?
Fólk treystir umsögnum frá öðru fólki betur heldur en auglýsingum. Þess vegna viltu gefa því eitthvað til að tala um og segja frá í fjölskylduboðinu, í vinnunni eða í saumaklúbbnum. Þetta gæti orðið einn af stærri tekjustraumunum þínum. Þess vegna þarftu að gera eitthvað sem sker þig úr fjöldanum og fær fólk til þess að tala.

Að sama skapi getur það skipt öllu hver það er sem talar um þig. Leitar þú ekki til sama aðilans þegar þig vantar ráðgjöf varðandi tölvumál? Eða bílamál? Eða nýja tónlist til að hlusta á? Þú vilt ná til þeirra sem hafa áhrif á almenningsálitið. Þess vegna er mjög mikilvægt að komast að því hverjir hafa mest áhrif í þínum markhópi og svo þarftu að höfða til þeirra svo þeir vilji tala um þig.
Hljómar þetta kunnuglega? Já auðvitað, þetta er líka mjög kunnuglegt! Höfundurinn er greinilega mjög klár og kann sitt fag. En hann fær líka helling lánað frá öðrum séníum, eins og t.d. Seth Godin (t.d. Purple Cow) og Malcolm Gladwell (t.d. Tipping Point). Þessari bók er samt beint eingöngu á það málefni að fá fólk til að tala um þig og gefur þér hugmyndir um hvernig þú getur gert það.
Það ætti ekkert af þessu að vera nýtt fyrir þér. Hins vegar er alltaf gott að dýfa sér í svona léttmeti inn á milli, aðeins til að fá smá innblástur, hugmyndir nú eða bara til að hafa eitthvað til að skrifa um á bloggið þitt.
Þetta er m.a. það sem mér fannst standa upp úr:
- Samfélagsmiðlar eru ekki umtal. Mér fannst flott hjá Andy að tækla þá umræðu. Þeir eru hins vegar mjög mikilvæg pípa í að dreifa og stuðla að umtali.
- Það er enginn að fara að tala um þig ef þú ert leiðinleg/ur. Nema þá um hversu leiðinleg/ur þú ert. Stattu upp úr fjöldanum og finndu það sem gerir þitt fyrirtæki áhugavert.
- Áttu aðdáendur? Hverjir elska vöruna þína eða vörumerkið? Talaðu við þá! Verðlaunaðu þá á einhvern hátt.
- Taktu þátt í umræðunni. Þakkaðu fyrir góð ummæli. Reyndu að lagfæra ef eitthvað fór úrskeiðis.
- Allt lifir að eilífu á Google!
Bókin er ágæt. Hún er létt og skemmtileg og þægilega upp sett. En hún fellur í sömu gryfju og langflestar svipaðar bækur gera: hún er alltof löng. Það hefði verið mjög auðvelt fyrir Andy karlinn að skrifa 70 blaðsíðna bók og hún hefði ekki verið neitt verri. En það er erfitt að selja 70 blaðsíður fyrir $10-15, og þannig er það. Ég mæli með henni fyrir alla þá sem eru að leita að innblæstri til að auglýsa sig eftir ódýrum leiðum, jafnt lítil sem stór vörumerki.
Gestabloggari:
Hjalti Rögnvaldsson
Bloggari og viðskiptafræðinemi
www.hjaltir.com